28.3.2024 | 09:14
Forsetaframbjóðandinn, Hver er ég ?
Ég kem að norðan. Fæddur á Akureyri og ættu margir þaðan að vita hverjir afar mínir eru þó svo ég sé ekki að draga neitt úr verðleika foreldra minna og amma en afinn úr móðurætt var Sigfús Jónsson verkstjóri á bryggjunni hjá Kea og afinn úr föðurætt var Baldvin Leifur Ásgeirsson sem átt og rak Leifs leikföng og svo síðar Mjallhvít þvottahús í Hólabraut 18.
Minn styrkur er eftirfarandi
Heiðarlegur
Samkvæmur sjálfum mér
Ber hag heildarinnar fram yfir einstaklingsins ef út í það færi
BC gráðu í virðiskeðjustjórnun
AP gráðu í markaðsfræði
Er ekki tækifærissinni
Er ekki einstaklingshyggjusamur
Skil samskipti mjög vel og þá bæði þegar um er að ræða beina ræðu og líkamstjáningu
Ég er meira gefandi en þyggjandi
Það er ekki margt sem ég hræðist. Hræðslu sem ég deili með öðrum er ótímabær andlát eða alvarlegir sjúkdómar innan fjölskyldunnar.
Veikleikar sem ég hef.
Stuttur þráður, ég er þó langt á leið kominn með að vinna úr því.
Ég hef haft þó nokkur ár í að vinna í veikleikum og auka styrk minn svo þetta er eini veikleikinn sem í hug kemur. Það er vissulega frekar lygilegt en ég mun bæta þeim inn þegar þeir koma fram svo allt komi fram.
Að vera forseti þýðir lítið sem ekkert einkalíf og persóna þess lítið sem ekkert varin. Þess vegna er það mikilvægt að forsetinn gefi ekki möguleika á höggi vegna orða eða gerða sinna.
Um bloggið
Snorri Óttarsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.